Viðskipti innlent

Jón Garðar dæmdur í tólf mánaða fangelsi

Samúel Karl Ólason skrifar
Jón Garðar Ögmundsson.
Jón Garðar Ögmundsson. Vísir/Vilhelm
Jón Garðar Ögmundsson, fyrrverandi rekstraraðili McDonald‘s á Íslandi og veitingastaðarins Metro, var í gær dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Þar að auki dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Jón Garðar til að greiða 70 milljónir króna í ríkissjóð innan fjögurra vikna. Níu mánuðir af tólf eru skilorðsbundnir til þriggja ára.

Hæstiréttur staðfesti í febrúar fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Jóni Garðari fyrir að standa ekki skil á opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna McDonald‘s og síðar Metro eftir að McDonald‘s hætti.

Þetta mál snýr þó að einkahlutafélaginu Líf og heilsu og var Ásgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins einnig ákærð. Þeim var gert að hafa framið sama brot og framið var hjá McDonald´s og Metro. Samtals 33.861.435 krónur hvað varðar Ásgerði og 34.960.099 krónur hvað varðar Jón Garðar.

Bæði neituðu þau sök. Fyrir dómi sagðist fyrrum bókari Lífs og Heilsu ehff. hafa starfað með Jóni Garðari við bókhald félagsins. Hún sagðist ekki hafa átt mikil samskipti við Ásgerði og hafi ekki litið á hana sem yfirmann sinn varðandi bókhald og rekstur. Hún hafi einungis tekið við fyrirmælum frá Jóni Garðari.

Ásgerður var alfarið sýknuð af ákæru í málinu. Í dómnum segir að hún hafi ekki verið starfandi sem eiginlegur framkvæmdastjóri, þó hún hafi verið skráð sem slík. Jón Garðar sagðist hafa starfað sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður og þannig borið ábyrgð á rekstrinum.

Málsvarnarlaun verjanda Ásgerðar greiðast úr ríkissjóði.

Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í heild sinni má lesa hér.


Tengdar fréttir

Skattsvik upp á tæpar 60 milljónir króna

Jón Garðar Ögmundsson, rekstraraðili McDonald's á Íslandi og síðar Metro, hefur í tvígang verið ákærður fyrir skattsvik. Héraðsdómur sakfelldi hann í öðru málinu á síðasta ári en aðalmeðferð í hinu málinu fer fram eftir mánuð.

Fimm mánaða dómur staðfestur yfir Jóni Garðari

Hæstiréttur staðfesti í dag fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Jóni Garðari Ögmundssyni, fyrrverandi rekstraraðila McDonald's á Íslandi og veitingastaðarins Metro.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×