Fótbolti

Jón Daði varð fyrir stríðni og einelti en fótboltinn bjargaði honum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Hann hefur komist áfram á einstökum metnaði og sjálfsaga. En hann hefur kannski lært af mér að halda áfram eftir mótbyr.“

Þetta segir Ingibjörg Erna Sveinsdóttir, móðir Jóns Daða Böðvarssonar, landsliðsmanns í fótbolta, í einlægu viðtali við Þóru Tómasdóttir í Fréttatímanum.

Jón Daði er búin að byrja alla fjóra leiki Íslands á EM og verið lykilmaður í liðinu síðan hann kom nokkuð óvænt inn í byrjunarliðið í fyrsta leik undankeppni EM 2016 gegn Tyrklandi á haustmánuðum 2014.

Jón Daði hefur, ásamt móður sinni, upplifað margt í lífinu, bæði hæðir og lægðir, en Ingibjörg segir frá uppeldi framherjans öfluga og dregur ekkert undan í þessu áhugaverða viðtali. Leið Jóns Daða þangað sem hann er komin hefur að mörgu leyti verið erfið.

Jón Daði Böðvarsson og Eiður Smári Guðjohnsen spila snóker á hótelinu í Annecy.vísir/vilhelm
Fljótur að skipta skapi

„Hann vill vera fyrirmynd barna sem eiga erfitt uppdráttar því það hefur haft mótandi áhrif á hann að hafa þurft að yfirstíga fjölmargar hindranir,“ segir Ingibjörg Erna.

Jóni Daða er lýst sem miklum harðjaxli og þá er hann með mikið skap. Hann er harður við sjálfan sig og keppnisskapið fleytir honum áfram. Þetta varð til þess að hann lenti í einelti í skóla, segir móðir hans.

„Hann átti erfitt uppdráttar því hann var hvatvís og fljótur að skipta skapi. Á tímabili tók ég eftir því að hann varð fyrir stríðni í skólanum og það var ákveðið einelti að byrja. Það varð svo slæmt að ég talaði við skólann á Selfossi, sem greip strax inn í,“ segir hún.

„Ég held það hafi komið honum sjálfum á óvart að þá fóru hlutirnir að snúast við. Það sem enn og aftur hjálpað honum var fótboltinn og sú virðing sem hann vann sér inn meðal sumra, fyrir að vera góður í honum. Fólk fór að taka eftir styrkleikum hans. Málin snerust við og drengirnir sem byrjuðu á að stríða honum fóru að styðja hann.“

Allt viðtalið má lesa hér.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Hittir beint í hjartastað

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson missti af fæðingu sonar síns þegar íslenska landsliðið var á leið á EM.

Þýskaland í undanúrslit eftir nítján víti

Þýskaland er komið í í undanúrslit á EM í Frakklandi eftir sigur á Ítalíu í vítaspyrnukeppni. Þeir mæta annað hvort Íslandi eða Frakklandi í undanúrslitunum.

Frábær blanda hjá frábæru liði

Heimamenn í franska landsliðinu taka á móti strákunum okkar á Stade de France á sunnudaginn en margir spá Frökkum Evrópumeistaratitlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×