Fótbolti

Jón Daði og Ragnar ekki í hættu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Daði lagði upp sigurmarkið gegn Englendingum eftir frábæra sókn strákanna okkar.
Jón Daði lagði upp sigurmarkið gegn Englendingum eftir frábæra sókn strákanna okkar. vísir/epa
Það er óhætt að segja að allar líkur séu á því að fái Ísland gult spjald í leiknum gegn Frakklandi á Stade de France á sunnudaginn þá fari viðkomandi leikmaður í bann. Níu leikmenn íslenska liðsins eru á gulu spjaldi eftir leikina fjóra á EM til þessa. Alls eru 45 leikmenn í liðunum átta á hættusvæði fyrir átta liða úrslitin sem hefjast í kvöld með leik Póllands og Portúgal.

Alfreð Finnbogason var í leikbanni í leiknum gegn Austurríki en þess utan hafa gulu spjöldið dreifst lygilega vel, sem betur fer.

„Þetta var hluti af planinu,“ sagði Lars Lagerbäck í gríni á blaðamannafundi í Annecy í gær. Réttir menn fengu gul spjöld í leiknum gegn Englandi. „Við sögðum þeim að þeir væru þeir einu sem mættu fá gul spjöld,“ grínaðist Svíinn áfram en ræddi svo á alvarlegum nótum.

Hann sagði landsliðsmennina hafa rætt gulu spjöldin, sum væru ósanngjörn en Lars hefur á árum sínum með landsliðið lagt mikið upp úr því að leikmenn sýni aga og fái ekki ódýr gul spjöld. 

Nú er staðan hins vegar sú að svo til allt byrjunarliðið er á gulu spjaldi, fyrir utan Ragnar Sigurðsson og Jón Daða Böðvarsson. Þeir eru einu leikmennirnir í byrjunarliðinu sem geta fengið gult spjald án þess að fara í bann í næsta leik.

N’Golo Kanté, leikmaður Leicester, og Adil Rami, miðvörður Sevilla, verða í banni í leiknum á móti Íslandi. Þá eru Olivier Giroud og Laurent Koscielny, leikmenn Arsenal, á hættusvæði.

Eftir átta liða úrslitin taka leikmenn ekki lengur spjöld með sér í næstu leiki. Gulu spjöldin þurrkast út. Ragnar og Jón Daði geta því áhyggjulausir fengið gult spjald án þess að vera á hættusvæði komist Ísland í undanúrslit. 

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á  Facebook Twitter  og Snapchat (sport365).

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×