Fótbolti

Jón Daði lék í 90 mínútur í markalausu jafntefli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Daði með Kaiserslautern.
Jón Daði með Kaiserslautern. vísir/getty
Kaiserslautern og Karlsruher gerður markalaust jafntefli í þýsku B-deildinni í knattspyrnu en Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Kaiserslautern.

Leikurinn var heldur tíðindalítill og náðu liðin ekki að koma boltanum í netið. Jón Daði var tekinn af velli á 89. mínútu leiksins en hann skoraði fínt mark fyrir liðið í síðustu umferð.

Kaiserslautern er í 11.sæti deildarinnar með 35 stig en Karlsruher í því tíunda með 39 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×