Fótbolti

Jón Daði: Fékk gæsahúð yfir þjóðsöngnum

Kolbeinn Tumi Daðason og Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Jón Daði Böðvarsson sækir á hollensku vörnina.
Jón Daði Böðvarsson sækir á hollensku vörnina. vísir/valli
„Maður gleymir þessu kvöld ekki fljótt, það er á hreinu. Ég held að þetta sé söguleg stund hjá þjóðinni okkar,“ sagði  Jón Daði Böðvarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir 1-0 sigur á Hollandi í kvöld.

„Að sigra Holland á útivelli er eiginlega bara ótrúlegt. Þegar Gylfi fór á punktinn hugsaði maður komdu boltanum í netið. Eftir það þurftum við bara að einbeita okkur að því að klára leikinn.“

Jón Daði sagðist hafa heyrt vel í þeim 3000 Íslendingum sem voru á vellinum í kvöld.

„Við heyrðum vel í þeim og þá sérstaklega í þjóðsöngnum. Maður fékk gæsahúð yfir því og þau hjálpuðu okkur svo sannarlega í kvöld. Þau stóðu undir nafninu tólfti maðurinn.“

Jón Daði kom inn fyrir Emil Hallfreðsson fyrir leiki dagsins en hann sagði þetta allt saman vera draumi líkast.

„Þetta eru svo mikil forréttindi og ég man alltaf eftir leiknum gegn Tyrklandi. Eftir það hef ég náð að halda stöðugleika í spilamennskunni og vonandi held ég þessu áfram,“ sagði Jón Daði sem skilaði kveðju á gamla bæinn sinni.

„Til hamingju Selfoss,“ sagði Jón Daði léttur.




Tengdar fréttir

Lars: Það er svo auðvelt að vinna með þessum strákum

Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins, var vissulega brosmildur eftir sigurinn á Hollandi í undankeppni EM í kvöld en þessi reyndi Svíi tók stærsta einum sigri Íslands frá upphafi á fótboltavellinum samt með sínu þjóðþekkta jafnaðargeði.

Birkir Bjarna: Heppnir að Robben fór af velli

Birkir Bjarnason var maðurinn á bak við sigurmarkið á móti Hollandi á Amsterdam Arena í kvöld en hann fiskaði vítið sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark leiksins úr í upphafi seinni hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×