Fótbolti

Jón Daði: Uppiskroppa með lýsingarorð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði lagði upp sigurmarkið.
Jón Daði lagði upp sigurmarkið. vísir/epa
Jón Daði Böðvarsson lagði upp sigurmark Kolbeins Sigþórssonar í 2-1 sigri Íslands á Englandi í 16-liða úrslitum EM 2016 í Nice í kvöld.

Selfyssingurinn var að vonum í skýjunum þegar hann ræddi við blaðamenn eftir leikinn.

„Ég er orðinn uppiskroppa með lýsingarorð. Þetta er fáránlegt og ótrúlegt og það bjóst enginn við þessu fyrir mót, kannski ekki einu sinni við sjálfir,“ sagði Jón Daði sem hefur skorað eitt mark og gefið eina stoðsendingu á EM.

Hann segir að íslensku leikmennirnir hafi mikla trú á sjálfum sér.

„Við vorum ekki með neinum smáliðum í riðli í undankeppninni og frá henni höfum haft þvílíka trú á okkur. Sama hvaða liði við mætum, við viljum bara vinna og það er æðislegt hugarfar,“ sagði Jón Daði sem fannst Englendingarnir ekkert sérstaklega hættulegir í seinni hálfleik.

„Mér fannst þeir ekki skapa sér mjög mikið. Þeir voru meira með boltann en mér fannst við spila frábæran varnarleik. Raggi Sig átti leik lífs síns og liðið í heild sinni. Svo reyndum við Kolli að halda boltanum frammi svo liðið næði aðeins að anda.“

Ísland mætir heimaþjóðinni Frakklandi í 8-liða úrslitum á sunnudaginn kemur. En hvað gerist þar?

„Sigur, við ætlum að halda áfram á sömu braut,“ sagði Jón Daði að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×