Sport

Jón Björn: Mikil og góð spenna í hópnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Margeir verður í eldlínunni í Ríó á næstu dögum.
Jón Margeir verður í eldlínunni í Ríó á næstu dögum. mynd/fí
Íslensku keppendurnir komu til Brasilíu á fimmtudaginn í síðustu viku og að sögn Jóns Björns Ólafssonar, aðalfararstjóra íslenska hópsins, hafa æfingar gengið vel.

„Þetta er allt að bresta á. Það hefur gengið rosalega vel að koma sér fyrir og æfa. Það er komin virkilega mikil og góð spenna í hópinn að sýna sig og sanna,“ sagði Jón Björn í samtali við Fréttablaðið í gær.

Helgi Sveinsson ríður á vaðið á föstudaginn þegar hann keppir í spjótkasti, flokki F42-44. Helgi hefur ekki farið leynt með markmið sitt að ná í gull en hann hefur náð framúrskarandi árangri í greininni á undanförnum árum. Keppnin er þó hörð í flokknum hans Helga.

„Hann er á leið í rosalega keppni. Forsmekkurinn að þessu keppnisfyrirkomulagi hjá honum var á HM í Doha í fyrra. Það var bráðskemmtileg og öflug keppni,“ sagði Jón Björn en Helgi endaði í 3. sæti á því móti.

Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson, sem verður fánaberi Íslands á opnunarhátíðinni á morgun, á titil að verja í 200 metra skriðsundi, flokki S14. Hann keppir einnig í 100 metra bringusundi og 200 metra fjórsundi.

„Hann er kominn með nokkra sterka keppinauta,“ sagði Jón Björn um möguleika nafna síns. „Þeirra á meðal er strákurinn sem hann tapaði fyrir á EM í sumar, Thomas Hamer. Svo er Ástralinn og vinur hans Jóns, Daniel Fox, einnig þarna. Við erum að horfa á mjög sterkt sund, ekki ósvipað og í flokki Helga.

Auk Jóns Margeirs á Ísland tvær sundkonur á Ólympíumóti fatlaðra í ár, Thelmu Björg Björnsdóttur og Sonju Sigurðardóttur.

„Báðar gera þær atlögu að því að komast í úrslit þótt það séu gríðarlega sterkir einstaklingar í þeirra flokkum. Ef þær synda sig inn í úrslit í einhverjum af sínum greinum, þá er það frábær árangur,“ sagði Jón Björn.

Þá á Ísland í fyrsta skipti keppenda í bogfimi. Sá heitir Þorsteinn og er Halldórsson. En við hverju má búast í bogfiminni?

„Það ræðst svolítið af forkeppninni, þar sem skotið er til stiga og raðað inn í útsláttarkeppnina. Þegar þangað er komið er þetta eins og bikarkeppni og þar er oft pláss fyrir ævintýrasögur,“ sagði Jón Björn að endingu. Dagskrá íslensku keppendurna má sjá hér að neðan.

Helgi kastar á föstudaginn.vísir/getty
Dagskrá íslensku keppendanna

9. september

17:45 Helgi Sveinsson, spjótkast F42-44

10. september

09:52 Thelma Björg Björnssdóttir, 50 m skriðsund S6

15:00 Þorsteinn Halldórsson, bogfimi

11. september

09:39 Thelma Björg, 100 m bringusund SB5

10:34 Jón Margeir Sverrisson, 200 metra skriðsund S14

12. september

11:21 Thelma Björg, 200 m fjórsund S6

13. september

09:46 Thelma Björg, 400 m skriðsund S6

14. september

09:00 Þorsteinn, bogfimi

10:17 Jón Margeir, 100 m bringusund S14

16. september

10:19 Sonja Sigurðardóttir, 50 m baksund S4

17. september

09:37 Thelma Björg, 100 m skriðsund S6

10:24 Sonja, 50 m skriðsund S4

11:06 Jón Margeir, 200 m fjórsund S14




Fleiri fréttir

Sjá meira


×