Jón Bjarnason víki fyrir Ögmundi Heimir Már Pétursson skrifar 10. mars 2010 18:39
Allar líkur eru á að Ögmundur Jónasson sé aftur á leið í ráðherrastól og að Jón Bjarnason víki úr ríkisstjórn. Frekari uppstokkun á stjórnarliðinu er ekki útilokuð. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður Ögmundur Jónasson, sem sagði af sér ráðherradómi hinn 30. september í fyrra, aftur ráðherra innan mánaðar, eða strax eftir páska. Líklegast er að Jón Bjarnason víki þá sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og enn frekari uppstokkun í ríkisstjórn kemur til greina. Það yrði hluti af sáttum við óróleikahópinn í þingliði Vinstri grænna, en hann telur eftir atvikum allt að sex þingmenn af fjórtán, þar sem Ögmundur fer fremstur í flokki. Aðrir í hópnum eru Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Jón Bjarnason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Atli Gíslason. Þessar sættir eru nauðsynlegar svo ríkisstjórnin geti lagt upp í erfið mál með öruggan meirihluta fyrir afgreiðslu þeirra. Þetta á jafnvel við um nýjan Icesave samning sem forysta stjórnarandstöðunnar ákveddi að styðja ekki, þótt það liggi ekki fyrir á þessari stundu. Ríkisstjórnin myndi varla leggja slikan samning fyrir þing án þess að hafa allt stjórnarliðið með sér, minnug fyrri mistaka í þeim efnum. Ögmundur sagði á Alþingi á mánudag að samstaða stjórnar og stjórnarandstöðu hefði skilað árangri í Icesavedeilunni. En nú væri kominn annar tónn í leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hann ætlaði ekki að taka þátt í því að fella ríkisstjórnina. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur einnig verið rætt að skipta út utanþingsráðherrunum tveimur, en það er þó ekki talið líklegt, þótt aðrir ráðherrar kunni að hafa stólaskipti innbirgðis.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira