Innlent

Jón Baldvin: „Kunna þeir ekkert fyrir sér í business þessir náungar?“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson. Vísir/Vilhelm
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra hafa breytt rétt með því að styðja NATO ríkin í viðskiptaþvingunum sínum gagnvart Rússum.

„Ef við hefðum sagst ekki ætla að vera með, af því hvað? Af því við fengum happdrættisvinninginn af því að einhver makrílstofn synti vegna loftslagsbreytinga í okkar landhelgi? Og af því Rússar hafa sett Norðmenn á bannlista þá getum við grætt á því líka? Hvers konar andskotans hálvitaskapur er þetta?“ segir ráðherrann fyrrverandi um þá skoðun sumra að betra hefði verið að halda friðinn við Rússa til að geta haldið áfram sölu á makríl þangað.

Jón Baldvin var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun og var fegninn til þess að miðla reynslu sinni. Eins og frægt er orðið var Jón Baldvin í eldlínunni upp úr 1990 þegar Ísland, fyrst þjóða, viðurkenndi sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.

Jón Baldvin var í eldlínunni í upphafi tíunda áratugarins.
Ráðherrann segir ekkert hæft í því að smáþjóðir geti ekki haft áhrif, eigi bara að hlýða og vera með öðrum í liði. Í fyrrnefndu dæmi hafi Ísland markað sér sjálfstæða utanríkisstefnu, haldið sig við prinsippin og stutt smáþjóðir þrátt fyrir mikla reiði Sovétríkjanna. Hann minnir á að öll olía og eldsneyti á báta- og flugvélaflotann á þessum tíma hafi komið þaðan í staðinn fyrir fisk.

„LÍÚ var ekki ánægt með mig,“ segir Jón Baldvin. Þeir hafi klagað sig í bæði forystu Sjálfstæðisflokksins og Steingrím Hermannsson. LÍÚ hafi þó ekki farið grátandi í almenning. Þeir hafi vitað sem var og er að í stríði Davíðs við Golíat styðja Íslendingar Davíð.

„Þeir finna til með þeim sem berjast fyrir frelsi sínu.“

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.Vísir
Einu mistökin sem Gunnar Bragi hafi mögulega gert séu þau að hafa ekki skoðað málið í tíma. Tæplega sé þó hægt að tala um þjóðarhagsmuni í tilfelli makrílsins þó vissulega sé um hagsmuni að ræða. Ár sé síðan viðskiptaþvinganirnar gagnvart Rússum tóku gildi. Það hefðu sjávarútvegsfyrirtækin líka átt að vera löngu búin að átta sig á.

„Er flókið á innan við ári að leysa það mál? Er þessi vara óseljanleg á öðrum mörkuðum? Kunna þeir ekkert fyrir sér í business þessir náungar?“

Þegar þáttastjórnendur bentu Jóni Baldvini á að svo virðist sem ákvörðun Rússa að stunda ekki viðskipti við Íslendinga hafi komið á óvart svaraði ráðherrann fyrrverandi?

„Á óvart? Þetta er búið að standa í ár. Vika er langur tími í pólitík, hvað er þá ár í business?“

Viðtalið í heild sinni má hlýða á hér að neðan.


Tengdar fréttir

Vaknað upp við vondan draum

Stjórnarliðar eru einkennilega ósamstíga varðandi ákvörðun sem utanríkisráðherra tók fyrir 17 mánuðum. Ísland hefur verið talsmaður þvingana gegn Rússum frá upphafi. Utanríkisráðherra hefur gert víðreist og fordæmt framferði Rú




Fleiri fréttir

Sjá meira


×