Körfubolti

Jón Axel setti niður þrjá þrista fyrir framan Curry

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Axel Guðmundsson og Steph Curry.
Jón Axel Guðmundsson og Steph Curry. Vísir/Samsett/Getty
Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson átti mjög flottan leik með Davidson í nótt þegar liðið vann fjórtán stiga sigur á Duquesne, 74-60.

Það sem var merkilegt við leikinn í gær var að Stephen Curry, mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar undanfarin tvö tímabil, var meðal áhorfenda. Það var ekki slæmt fyrir íslenska unglingalandsliðsmanninn að geta sýnt flotta takta fyrir framan einn besta körfuboltamanns heims.

Stephen Curry lék með Davidson-skólanum frá 2006 til 2008 og skoraði þá 25,3 stig að meðaltali í 104 leikjum.  Hann er eins og kunnugt er frábær skytta og okkar maður var líka heitur fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum í nótt.

Curry heimsótti gamla skólann sinn í gær en Golden State Warriors er ferðalagi um Austurströnd Bandaríkjanna þessa dagana.  Warriors-liðið mætir einmitt liði Charlotte Hornets á útivelli í kvöld.  Davidson er aðeins í um hálftíma fjarlægð frá borginni Charlotte.

Jón Axel var með 12 stig, 9 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta í leiknum í nótt og Curry var örugglega sáttur með Íslendinginn þegar þeir hittustu eftir leik.

Jón Axel hitti líka úr 3 af 5 þriggja stiga skotum sínum en enginn annar leikmaður Davidson-liðsins skoraði fleiri þrista en hann í þessum leik.

Jón Axel skoraði tvær af þriggja stiga körfum sínum í fyrri hálfleiknum sem Davidson vann 39-16. Fyrsti þristurinn hans kom Davidson í 7-0 eftir tveggja mínútna leik og þristur númer tvö kom Davidson í 10-0 eftir 2 mínútur og 43 sekúndur.

Hér fyrir neðan má sjá Jón Axel Guðmundsson og félaga með Stephen Curry í búningsklefa Davidson eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×