Jón Ásgeir: Morgunblađiđ rćđst ađ mér

Vísir Viđskipti innlent 22. nóvember 2008 18:52
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, segir í yfirlýsingu að Morgunblaðið haldi áfram að ráðast gegn sér og tengdum félögum. Morgunblaðið segir að helstu stjórnendur Glitnis ásamt fulltrúum stærsta hluthafans, FL Group, hafi brotið allar verklagsreglur við lánveitingar. Líklegt sé að krafist verði opinberrar rannsóknar á viðskiptunum.

,,Hvað gengur Morgunblaðinu til? Hverra erinda gengur blaðið? Af hverju hafa órökstuddar ávirðingar í nýlegum greinaskrifum einstaklinga ratað í þrígang á forsíðu blaðsins? Af hverju er Agnes Bragadóttir með mig og tengd félög á heilanum, en fjallar lítið sem ekkert um aðra banka eða eigendur blaðsins? Af hverju eyðir seðlabankastjóri stórum hluta ræðu sinnar hjá Viðskiptaráði í ósannindi um að ég stjórni öllum fjölmiðlum í landinu og að ég skuldi þúsund milljarða?" spyr Jón Ásgeir í yfirlýsingu sinni.

Jón Ásgeir segir sjálfsagt og eðlilegt fjallað sé með gagnrýnum hætti um viðskiptalífið eins og önnur svið samfélagsins en sú gagnrýni verði að byggjast á staðreyndum og rökum ekki endurteknum dylgjum og slúðri.






Yfirlýsing Jón Ásgeirs í heild sinni:
Yfirlýsing Jón Ásgeirs í heild sinni:
Ég var stjórnarformaður FL Group, stærsta hluthafa Glitnis, á þeim tíma er um ræðir og vil gera nokkrar athugasemdir við þennan ósvífna fréttaflutning.

Í yfirliti um stærstu skuldara Glitnis dags. 31. janúar 2008 kemur fram að lán til FL Group, stærsta hluthafa bankans, námu 26,6 milljörðum króna. Þótt hér hafi greinilega einhver brotið bankaleynd þykir mér í sjálfu sér ágætt að þetta komi fram, því þetta sýnir svart á hvítu að dylgjur um að FL Group hafi blóðmjólkað Glitni eru ekki á rökum reistar. Heildarútlán Glitnis til viðskiptamanna um síðustu áramót voru 1.975 milljarðar. Lán til FL Group, sem þá var annað af tveimur stærstu fjárfestingafélögum landsins, voru því einungis 1,35% af heildarútlánum bankans. Á yfirlitinu sé ég að lán Glitnis til Exista námu á sama tíma 22,8 milljörðum króna sem var 1,15% af heildarútlánum Glitnis.

Í greininni er ennfremur vikið að þremur lánveitingum Glitnis til FL Group í nóvember og desember 2007. Agnes heldur því fram að þessar lánveitingar hafi verið óeðlilegar og að FL Group hafi verið komið í þrot á þessum tíma. Þetta eru einfaldlega órökstuddar og rangar fullyrðingar. Ég hef látið skoða þessar lánveitingar. Í ljós kemur að um var að ræða endurfjármögnun að mestu leyti. Nóvemberlánin tvö voru veitt gegn tryggu veði í eignarhlutum í Geysi Green Energy og Refresco.

Desemberlánið upp á 15,9 milljarða var veitt gegn veðum í eignarhlutum í Landic Property og fleiri fasteignafélögum. Andvirði lánsins var notað til að greiða niður önnur lán FL Group og greiddi FL Group lán sín hjá Glitni að auki niður um 7 milljarða á þessum tíma. Ég kom hvergi nærri þessum lánamálum og það var nákvæmlega ekkert óeðlilegt við afgreiðslu lánanna. Þau eru í fullu samræmi við lánafyrirgreiðslu Glitnis við aðra viðskiptamenn og í fullu samræmi við fyrigreiðslu til FL Group hjá öðrum lánastofnunum, innlendum og erlendum.

Morgunblaðið er væntanlega að reyna að planta þeirri hugmynd að stærstu eigendur Glitnis, félög tengd mér, hafi gengið um sjóði Glitnis eins og þeir ættu þá. Það vill þannig til að í opinberum árshlutareikningum viðskiptabankanna þriggja koma fram upplýsingar um hlutfall lána bankanna til þeirra sem teljast tengdir aðilar, svo sem stjórnenda, stórra hluthafa og stjórnarmanna og félaga á þeirra vegum. Hér til hliðar má sjá tölur um þetta frá 30. júní 2008. Hlutfall lána bankanna þriggja til tengdra aðila nam þá á bilinu 2,5-3,5% af heildarútlánum bankanna.

Agnes margendurtekur í grein sinni að FL Group hafi verið komið í þrot í nóvember og desember 2007, sem sýnir enn hve illa hún er að sér, eða þá hvað hún treystir sér til að fara frjálslega með staðreyndir í áróðursstríði sínu. Í ársreikningi FL Group kemur fram að eigið fé félagsins var 155,8 milljarðar króna í árslok 2007 og þar af var laust fé 28,6 milljarðar. Við birtingu ársreikningsins stóðu einungis 8,5 milljarðar eftir af lánum með gjalddaga á árinu 2008. Það er svo önnur saga hvernig fór fyrir FL Group á haustmánuðum 2008 sem ég fer ekki út í hér.

Agnes hrærir svo saman mörgum félögum og leggur saman skuldir þeirra við Glitni. Það er mestmegnis á sandi byggt, t.d. kem ég eða FL Group hvergi nálægt félögum á borð við Gnúp, Fons, Stím eða Kötlu Seafood. Að auki segir Agnes mig hafa stofnað til Stíms ehf., sem er tóm þvæla. En ég kannast við Baug og Landic Property.

Baugur, sem er í meirihlutaeigu minni, skuldaði skv. yfirlitinu Glitni 14,5 milljarða króna. Landic Property, sem er að hluta til í eigu félaga sem tengjast mér, skuldaði Glitni 12,7 milljarða króna lán á þessum tíma. Í báðum tilfellum var um fjármögnun fjárfestingaverkefna að ræða, gegn veði í viðkomandi eignum. Skv. yfirlitinu nam samanlögð fyrirgreiðsla Glitnis við FL Group, Baug og Landic Property þann 31. janúar 2008 því 53,8 milljörðum króna. Þrjú af tíu stærstu fyrirtækjum landsins voru sem sagt samtals með 2,7% af heildarútlánum þriðja stærsta banka landsins? Hvað er óeðlilegt við það? 

Ég get líka staðfest að þessi félög, FL Group, Baugur og Landic Property, voru öll í skilum með öll sín lán, innanlands sem utan, í lok september sl. þegar Seðlabankinn rústaði Glitni og íslensku efnhagslífi í leiðinni.
Það stendur ekki steinn yfir steini í svikabrigslum Agnesar. Það er líklega vegna þess að hún hefur ákveðið fyrirfram, eins og hirðin sem hún tilheyrir, að allt sem tengist mér og mínum félögum sé tóm spilling og svikamylla. Hugsanlega veit Agnes betur en tilgangurinn helgar meðalið.
Ég get skilið að venjulegt fólk, sem hefur því miður orðið fyrir barðinu á hruni íslensks efnahagslífs, sé reitt og leiti skýringa, jafnvel sökudólga.

Það ríkir mikil tortryggni og andúð í garð bankanna, fjárfestingafélaganna og ekki síst þeirra einstaklinga í viðskiptalífinu sem mest hefur borið á. Ég mun standa skil á því sem að mér snýr og vík mér ekki undan þeirri ábyrgð sem ég ber. Ég veit að ég hef ekki aðhafst neitt ólöglegt og neita því að sitja undir ítrekuðum ásökunum á borð við þær sem Agnes ber á borð, í trausti þess að fólk geri ekki kröfur um að svikabrigslin séu rökstudd.

Hvað gengur Morgunblaðinu til? Hverra erinda gengur blaðið? Af hverju hafa órökstuddar ávirðingar í nýlegum greinaskrifum einstaklinga ratað í þrígang á forsíðu blaðsins? Af hverju er Agnes Bragadóttir með mig og tengd félög á heilanum, en fjallar lítið sem ekkert um aðra banka eða eigendur blaðsins? Af hverju eyðir seðlabankastjóri stórum hluta ræðu sinnar hjá Viðskiptaráði í ósannindi um að ég stjórni öllum fjölmiðlum í landinu og að ég skuldi þúsund milljarða?

Það er sjálfsagt og eðlilegt að fjallað sé með gagnrýnum hætti um viðskiptalífið eins og önnur svið samfélagsins, en sú gagnrýni verður að byggjast á staðreyndum og rökum, ekki síendurteknum ósannindum, dylgjum og slúðri.

Jón Ásgeir Jóhannesson.


Fleiri fréttir - Viđskipti innlent

Viđskipti innlent 25. maí. 2012 10:27

Landsbankinn selur hlut sinn í Hampiđjunni

Landsbankinn hf. hefur ákveđiđ ađ bjóđa til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiđjunni hf. e...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 19:15

Rannsökuđu gjaldţol Milestone

Rannsóknir lögreglumannanna tveggja sem kćrđir hafa veriđ ríkissaksóknara, fyrir brot á ţa...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 16:52

Landsbankinn rćđst í niđurskurđ - lokar útibúum

Landsbankinn mun ráđast í mikinn niđurskurđ, sem felur međal annars í sér lokun útibúa, á ...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 16:24

Telur ađ hann hafi átt ađ fá ađgang ađ gögnunum

Skiptastjóri ţrotabús Milestone segir ađ öll ţau gögn sem afhent voru á grundvelli rannsók...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 15:46

OR semur um breytingar á afborgunum lána

Orkuveita Reykjavíkur hefur samiđ viđ Dexia Crédit Local bankann um breytingar á afborgunu...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 14:43

Samherji kćrir úrskurđ Hérađsdóms Reykjavíkur til Hćstaréttar

Samherji hefur kćrt úrskurđ Hérađsdóms Reykjavíkur, frá ţví í síđustu viku, til Hćstarétta...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 14:05

Rauđar tölur lćkkunar í kauphöllinni

Gengi hlutabréfa hjá félögum sem skráđ eru á markađ í Kauphöll Íslands hafa lćkkađ nokkuđ ...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 12:00

Unnu skýrslu um gjaldţol Milestone - sinna rekstri á sviđi rannsókna

Lögreglumennirnir tveir sem hafa veriđ kćrđir til ríkissaksóknara, Guđmundur Haukur Gunnar...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 10:31

Framtíđ Lýsingar í húfi

Hćstiréttur kveđur í dag upp dóm í máli fjármögnunarfyrirtćkisins Lýsingar gegn Smákrönum....  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 10:15

Keldan, Vísir og Kauphöllin setja á fót ávöxtunarleik

Keldan.is, Vísir.is og Kauphöllin hafa gengiđ frá samstarfssamningi um nýjan ávöxtunarleik...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 09:57

Jónas Fr: RNA hafđi rangt fyrir sér

"Hćstiréttur stađfesti nýlega dóm fjölskipađs hérađsdóms ţar sem felld var úr gildi stjórn...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 09:15

Lögreglumennirnir mćttu í dómsal í máli Lárusar og Guđmundar

Tveir fyrrum lögreglumenn sem störfuđu fyrir embćtti sérstaks saksóknara hafa veriđ kćrđir...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 09:11

Verđbólgan 5,4 prósent - lćkkar um eitt prósentustig

Vísitala neysluverđs miđuđ viđ verđlag í maí er 398,1 stig (maí 1988=100) og lćkkađi um 0,...  

Meira
Viđskipti innlent 24. maí. 2012 16:14

Fjármögnunarfyrirtćkiđ Lýsing sýknađ af kröfum Smákrana

Hćstiréttur sýknađi í dag fjármögnunarfyrirtćkiđ Lýsingu af kröfum Smákrana vegna fjármögn...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 21:15

Reykjanesbćr búinn ađ veita samţykki

Bćjarráđ Reykjanesbćjar samţykkti fjárhagslega endurskipulagingu Eignarhaldsfélagsins Fast...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 20:00

179 umsóknir til ađ komast í tíu teymi

Alls bárust 179 umsóknir frá yfir 400 einstaklingum um ţátttöku í Startup Reykjavík, örfjá...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 19:15

Risafjárfesting í fiskeldi sem nýtir kćlivatn virkjunar

Milljarđa uppbygging fiskeldisstöđvar er hafin á Reykjanesi, sem nýta mun kćlivatn virkjun...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 16:15

Landsbankinn hćkkar vexti á óverđtryggđum lánum

Landsbankinn hefur hćkkađ vexti á óverđtryggđum húsnćđislánum sínum. Óverđtryggđir vextir ...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 15:30

Stođir vilja 22 milljarđa frá Glitni

Stođir lýstu riftunarkröfu á hendur Glitni banka á árinu 2009 vegna veđréttatilfćrslna og ...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 15:29

Tíu sóttu um stöđu forstjóra FME

Tíu manns sóttu um stöđu forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem auglýst var laust til umsóknar...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 15:00

Mikil starfsemi hjá málsvörum atvinnulífs

Velta ţeirra hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á annan milljarđ á ár...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 14:00

Glitnir vill fá fjórtán milljarđa frá Stođum

Slitastjórn Glitnis hefur stefnt Stođum, sem áđur hétu FL Group, til ađ greiđa sér fjórtán...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 10:59

Ljósmyndara vísađ á dyr á ađalfundi Bakkavarar

Ágúst Guđmundsson, sem kenndur er viđ Bakkavör, ákvađ upp á sitt einsdćmi ađ vísa ljósmynd...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 09:36

Hćtta mögulega Tchenguiz-rannsókn

Hugsanlegt er ađ rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, ...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 16:30

Fer frá Össuri til Háskóla Íslands

Hilmar Bragi Janusson, framkvćmdastjóri vöruţróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf., tek...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 09:57

Hagnađur Arion nam 4,5 milljörđum

Hagnađur Arion banka á fyrsta ársfjórđungi ársins nam 4,5 milljörđum króna eftir skatta en...  

Meira
Viđskipti innlent 23. maí. 2012 08:00

Ákćrđur fyrir innherjasvik hjá Glitni

Sérstakur saksóknari hefur ákćrt Friđfinn Ragnar Sigurđsson, fyrrverandi framkvćmdastjóra ...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 21:57

Reginn hf. hagnađist um 138 milljónir á fyrsta ársfjórđungi

Rekstrartekjur Regins hf. dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórđungi ţessa árs námu ...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 17:45

Vonast til ađ fćreyska olíućvintýriđ sé ađ byrja

Dýrasta og viđamesta olíuborun til ţessa á landgrunni Fćreyja er fyrirhuguđ í sumar. Hún g...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 17:23

Gengi Össurar hćkkađi skarplega

Gengi hlutabréfa í Össuri hćkkađ um tćplega 3 prósent í dag, eftir ađ tilkynnt var um bođ ...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 16:09

Bjóđast til ađ kaupa allt hlutafé í Össuri

William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til ţess ađ kaupa öll hlutabréf í stođtćkjafyr...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 15:15

"Kómískt“ ađ sjá nefnd snillinga verđleggja fjármuni

Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun ađ fjármálakerfum vera lífsnauđsynlega svo...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 13:32

Kjaradeilu sjómanna vísađ til sáttasemjara

Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuđu í dag kjaraviđrćđum útv...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 13:20

ASÍ telur ríkiđ brjóta gegn jafnrćđisreglu

ASÍ telur ríkiđ brjóta gegn jafnrćđisreglu međ innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóđu...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 10:37

Sigurjón Sighvatsson vill milljarđ frá Glitni

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiđandi hefur stefnt ţrotabúi Glitnis vegna viđskipta v...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 10:24

Launavísitalan lćkkar um 0,1 prósent

Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lćkkađi um 0,1% frá fyrri mánuđi. Síđastliđna ...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 10:07

Aflaverđmćti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverđmćti íslenskra skipa nam 30,1 milljarđi króna á fyrstu tveimur mánuđum ársins 2012...  

Meira
Viđskipti innlent 22. maí. 2012 09:11

Arionbanki hćkkar vexti

Arion banki hefur hćkkađ vexti á óverđtryggđum inn- og útlánum. Vaxtahćkkunin kemur í kjöl...  

Meira
Viđskipti innlent 21. maí. 2012 17:14

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hruniđ í dag, og nemur lćkkunin ţađ sem af er degi tćplega 9 prósentu...  

Meira
Viđskipti innlent 21. maí. 2012 16:59

Tölvur og linsur á Suđurskautinu

Höfuđstöđvar Nýherja iđuđu af lífi ţegar fréttastofa heimsótti ţćr á dögunum. Ţetta er önn...  

Meira
Viđskipti innlent 21. maí. 2012 15:08

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, ţar sem Helgi Magnússon, stjórnarformađur Lífeyrissjóđs verzlunarm...  

Meira
Viđskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnađar lćkkar lítiđ eitt

Vísitala byggingarkostnađar lćkkađi um 0,1 prósentustig milli mánađa og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viđskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupţingsviđskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eđa Serious Fraud Office, varađi brćđurna Robert o...  

Meira
Viđskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiđa 10 milljarđa fyrir ađ láta Kaupţingsmál niđur falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauđst til ţess ađ láta rann...  

Meira
Viđskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Ţađ var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gćr ţegar viđski...  

Meira
Viđskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverđ fer enn hćkkandi

Vísitala leiguverđs á höfuđborgarsvćđinu hćkkađi um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síđa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Lifid
  • Allt

Skođun

Umsókn um málfrelsi

Umsókn um málfrelsi

Pawel Bartoszek
Fyrir seinustu alţingiskosningar bauđ RÚV frambođunum ađ fá ókeypis kynningartíma í sjónvarpi. Sum, til d...

Skođun

Raunhćfa planiđ

Raunhćfa planiđ

Ólafur Ţ. Stephensen
Ţegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir ţau tímabundna ráđstöfun til nokkurra v...

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Viđskipti / Viđskipti innlent / Jón Ásgeir: Morgunblađiđ rćđst ađ mér