Körfubolti

Jón Arnór verður ekki með í Lúxemborg

Jón Arnór verður ekki með íslenska landsliðinu í Lúxemborg.
Jón Arnór verður ekki með íslenska landsliðinu í Lúxemborg. Vísir/
Jón Arnór Stefánsson verður ekki með körfuboltalandsliðinu í æfingaferðinni til Lúxemborgar, en strákarnir halda utan á miðvikudaginn og leika tvo vináttulandsleiki við heimamenn á fimmtudag og föstudag.

Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2015, en Ísland er í riðli með Bosníu og Bretlandi og leikur heima og að heiman við hvora þjóð.

„Hann fær frí af persónulegum ástæðum,“ segir Arnar Guðjónsson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, við Fréttablaðið sem hefur lista yfir landsliðshópinn undir höndum. KKÍ birtir hann svo formlega í dag.

Allir bestu körfuknattleiksmenn þjóðarinnar eru með fyrir utan Jakob Örn Sigurðarson sem sagði Fréttablaðinu fyrr í mánuðinum að hann vildi taka sér hvíld frá landsliðinu og huga að fjölskyldunni.

„Jón Arnór spilar þessa leiki,“ ítrekar Arnar sem segir íslenska liðið eiga tækifæri á að komast á EM, en tveir sigrar á löskuðu, en þó sterku, liði Breta verða mögulega nóg.

„Við eigum séns. Það er mjög ólíklegt að NBA-leikmenn Breta verði með og það voru miklir peningar teknir úr körfuboltanum eftir Ólympíuleikana,“ segir Arnar, en NBA-leikmennirnir eru Luol Deng, leikmaður Miami Heat og Joel Freeland hjá Portland Trailblazers.

Bosnía er með lið á heimsmælikvarða og þykir ólíklegt að okkar strákar nái að stríða því. Bretarnir eru skotmarkið, en leikirnir við þá verða ekkert grín þótt liðið sé ekki jafnsterkt og fyrir tveimur árum.

„Þarna eru leikmenn sem spila í ACB-deildinni á Spáni. Þetta er alvöru lið þó að það vanti tvo menn. Áhuginn á körfubolta er að aukast í Bretlandi og þetta verður í fyrsta skipti sem sýnt er beint frá leikjum í undankeppni EM,“ segir Arnar.

Eins og sjá má á leikmannahópi íslenska liðsins eru allir atvinnumenn Íslands nema tveir; Jakob Örn og Ægir Þór Steinarsson.

Sigurður Þorvaldsson er kominn aftur í liðið frá síðustu undankeppni og þá eru Grindvíkingarnir Ólafur Ólafsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson í hópnum ásamt ungstirnunum Elvari Má Friðrikssyni og Martin Hermannssyni.

Hópurinn sem fer til Lúxemborg:

Ólafur Ólafsson, Grindavík

Haukur Helgi Pálsson, Breogan

Elvar Már Friðriksson, Njarðvík

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík

Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons

Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli

Martin Hermannsson, KR

Axel Kárason, Værlöse

Ragnar Nathanaelsson, Sundsvall Dragons

Hörður Axel Vilhjálmsson, MBC

Logi Gunnarsson, Njarðvík

Pavel Ermolinskij, KR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×