Körfubolti

Jón Arnór tíundi meðlimurinn í tíu tilnefninga klúbbnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Getty
Körfuboltamaðurinn Jón Arnór Stefánsson og Íþróttamaður ársins hjá Samtökum Íþróttafréttamanna fyrir árið 2014 kemur aftur til greina sem Íþróttamaður ársins fyrir árið 2015.

Jón Arnór Stefánsson komst í glæsilegan klúbb þegar hann fékk þessa tilnefningu sem var hans tíunda á ferlinum.

Það hafa bara níu aðrir íþróttamenn komist tíu sinnum eða oftar í hóp efstu tíu í árlegu kjöri Samtaka íþróttafréttamanna.

Meðal þeirra er bróðir Jóns Arnórs, Ólafur Stefánsson, sem á sínum tíma var tólf sinnum meðal tíu efstu í kjörinu en Ólafur var fjórum sinnum kjörinn Íþróttamaður ársins.

Sundmaðurinn Guðmundur Gíslason var oftast tilnefndur eða fimmtán sinnum. Ólafur deilir öðru sætinu með júdómanninum Bjarna Friðrikssyni.

Jón Arnór er í 5. sætinu með þeim Ásgeiri Sigurvinssyni, Eið Smára Guðjohnsen, Einari Vilhjálmssyni, Kristjáni Arasyni og Geir Hallsteinssyni.

Jón Arnór stóð sig frábærlega með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Berlín þar sem hann stigahæstur (13,6 í leik) og stoðsendingahæstur (5,8 í leik) í liðinu en aðeins sex leikmenn í öllu mótinu gáfu fleiri stoðsendingar að meðaltali en hann.

Jón Arnór spilaði með stórliði Unicaja Malaga á síðasta tímabili þar sem liðið fór í undanúrslit í bæði úrslitakeppninni og í bikarkeppninni.

Liðið tapaði í oddaleik á móti Barcelona í úrslitakeppninni og Barcelona sló Unicaja líka út í undanúrslitum bikarsins.

Jón Arnór vann sér inn þriggja mánaða samning hjá Valencia Basket með frábærri frammistöðu sinni með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu og liðið samdi síðan við hann út tímabilið.

Valencia Basket hefur unnið fyrstu 22 leiki tímabilsins, tólf þeirra í spænsku deildinni og aðra tíu í Evrópukeppninni.

Oftast meðal tíu efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins:

1. Guðmundur Gíslason    Sund    15 sinnum

2. Bjarni Friðriksson    Júdó    12

2. Ólafur Stefánsson    Handbolti    12

4. Valbjörn Þorláksson    Frjálsar Íþróttir    11

5. Ásgeir Sigurvinsson    Knattspyrna    10

5. Eiður Smári Guðjohnsen    Knattspyrna    10

5. Einar Vilhjálmsson    Frjálsar Íþróttir    10

5. Geir Hallsteinsson    Handbolti    10

5. Jón Arnór Stefánsson    Körfubolti    10

5. Kristján Arason    Handbolti    10

11. Hreinn Halldórsson    Frjálsar Íþróttir    9

11. Örn Arnarson    Sund    9

13. Guðjón Valur Sigurðsson    Handbolti    8

13. Jón Arnar Magnússon    Frjálsar Íþróttir    8

13. Þorsteinn Hallgrímsson    Körfubolti    8




Fleiri fréttir

Sjá meira


×