Körfubolti

Jón Arnór og strákarnir æfðu í Ásgarði | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Arnór Stefánsson æfði auðvitað í Dallas Mavericks-bol.
Jón Arnór Stefánsson æfði auðvitað í Dallas Mavericks-bol. vísir/daníel
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í körfubolta æfðu í Ásgarði í Garðabæ í morgun, en þeir halda utan til Lúxemborgar á morgun og spila þar tvo vináttuleiki við heimamenn á fimmtudag og laugardag.

Leikirnir verða þeir fyrstu sem nýr landsliðsþjálfari, Craig Pedersen, stýrir liðinu í, en hann tók við Íslandi af Svíanum Peter Öqvist sem gerði góða hluti með liðið.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var í Ásgarði í morgun og tók myndirnar sem sjá má hér að ofan og neðan.

KKÍ staðfesti fyrr í dag landsliðshópinn sem Fréttablaðið birti í morgun, en fjórtán leikmenn fara til Lúxemborgar.

Hópurinn:

Ólafur Ólafsson, Grindavík

Haukur Helgi Pálsson, Breogan

Elvar Már Friðriksson, Njarðvík

Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík

Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons

Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli

Martin Hermannsson, KR

Axel Kárason, Værlöse

Ragnar Nathanaelsson, Sundsvall Dragons

Hörður Axel Vilhjálmsson, MBC

Logi Gunnarsson, Njarðvík

Pavel Ermolinskij, KR

Jón Arnór Stefánsson æfði með liðinu í morgun, en hann fer ekki með til Lúxemborgar frekar en KR-ingurinn Helgi Már Magnússon. Þeir mæta aftur til æfinga þegar liðið kemur heim og verða með í undankeppni EM í ágúst þar sem liðið mætir Bosníu og Bretlandi heima og að heiman.

Þrjátíu leikmenn voru boðaðir til æfinga í upphafi og var ljóst þegar nær dró fyrstu æfingum að margir leikmenn gáfu ekki kost á sér og/eða voru meiddir.  Þjálfarar landsliðsins boðuðu Sigurð Þorvaldsson, Snæfelli, inn í æfingahópinn frá þeim upprunalega sem gefinn var út.

Eftirtaldir leikmenn voru í æfingahópnum í upphafi:

Emil Barja, Haukum, SveinbjörnClaessen, ÍR, Stefán Karel Torfason, Snæfelli, TómasHeiðar Tómasson, Þór Þorlákshöfn, BirgirBjörnPétursson, Val og Matthías Orri Sigurðsson, ÍR.

Eftirtaldir leikmenn gáfu ekki kost á sér í liðið:

Brynjar Þór Björnsson

Darri Hilmarsson (meiddur)

Finnur Atli Magnússon (meiddur)

Helgi Rafn Viggósson

Jakob Örn Sigurðarsson

Jóhann Árni Ólafsson

Kristófer Acox (meiddur)

Marvin Valdimarsson

Mirko Stefán Virijevic

Ómar Örn Sævarsson

Ægir Þór Steinarsson (meiddur)

Hlynur Bæringsson, leikmaður Sundsvall Dragons.vísir/daníel
Haukur Helgi Pálsson undirbýr skot, en hann spilar með Breogan á Spáni.vísir/daníel
Jón Arnór leggur boltann ofan í körfuna.vísir/daníel
Þjálfarateymið (frá hægri): Craig Pedersen, Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson.vísir/daníel
Pavel Ermolinskij, Íslandsmeistari með KR.vísir/daníel
Axel Kárason, leikmaður Værlöse í Danmörku.vísir/daníel
Craig Pedersen, nýr landsliðsþjálfari.vísir/daníel

Tengdar fréttir

Jón Arnór verður ekki með í Lúxemborg

Besti körfuknattleiksmaður landsins fékk frí vegna persónulegra ástæðna og fer því ekki með í æfingaferðina en mætir til leiks í undankeppni EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×