Körfubolti

Jón Arnór og félagar lögðu Real Madrid í fyrsta leik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jón Arnór á Eurobasket í haust.
Jón Arnór á Eurobasket í haust. Vísir/Valli
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia unnu fyrsta leik tímabilsins með sex stigum, 88-82, gegn stórveldinu Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Valencia leiddi í hálfleik 45-37 en spænsku meisturunum í Real Madrid tókst að ná forskotinu í þriðja leikhluta. Í fjórða leikhluta tókst leikmönnum Valencia hinsvegar að loka á sóknarleik Real Madrid og vinna að lokum sex stiga sigur.

Jón Arnór sem gekk til liðs við Valencia í haust lék tæpar fimm mínútur í leiknum og setti fimm stig en næsti leikur Valencia er gegn Joventut á heimavelli um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×