Körfubolti

Jón Arnór með átta stig í bursti Valencia

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik. vísir/valli
Valencia átti í engum vandræðum með Retabet í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í morgun, en lokatölur urðu 42 stiga sigur Valencia, 121-79.

Jón Arnór Stefánsson spilaði í tæpar fimmtán mínútur fyrir Valencia og á þeim mínútum skoraði hann átta stig og gaf fjórar stoðsendingar.

Björninn var unninn í hálfleik þegar staðan var 45-60 og eftirleikurinn varð rosalega auðveldur fyrir gestina frá Valencia.

Valencia er á toppi ACB-deildarinnar með 52 stig, en Barcelona er í öðru sætinu með jafn mörg stig, þó lakari innbyrðisviðureign. Barcelona á þó leik til goða.

Valencia á sex leiki eftir í deildarkeppninni, en Barcelona sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×