Körfubolti

Jón Arnór komst ekki á blað í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson spilaði rúmar fjórtán mínútur í stórsigri Unicaja Malaga á Ucam Murcia CB, 80-56. Jón Arnór komst þó ekki á blað.

Unicaja tapaði fyrsta leikhlutanum 17-19, en unnu næsta leikhluta með tíu stigum og voru því yfir í hálfleik, 39-29.

Þeir stigu svo á bensingjöfina í síðari hálfleik og unnu að lokum 24 stiga sigur, 80-56.

Jón Arnór náði ekki að skora, en hann gaf tvær stoðsendingar  í leiknum.

Unicaja heldur toppsætinu með sigrinum, en þeir eru með tveggja stiga forskot á Real Madrid. Ucam Murcia er í ellefta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×