Körfubolti

Jón Arnór klárar tímabilið með Valencia

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson mun framlengja samning sinn við Valencia, topplið spænsku úrvalsdeildarinnar, til loka tímabilsins. Þetta kom fram á karfan.is í kvöld.

„Þeir vilja semja og við göngum líkast til frá þessu á fimmtudag,“ sagði hann í samtali við karfan.is í kvöld. Hann hafði áður samið við Valencia til þriggja mánaða en er nú verðlaunaður fyrir góða frammistöðu með nýjum samningi.

Valencia er eitt á toppnum á Spáni eftir að hafa unnið alla átta leiki sína á tímabilinu til þessa. Jón Arnór hefur komið við sögu í öllum átta og er með 6,5 stig að meðaltali í leik á tólf mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×