Körfubolti

Jón Arnór: Þetta er hátindurinn á ferlinum

Guðmundur Marinó Ingvarsson í Laugardalshöll skrifar
Jón Arnór í leikslok.
Jón Arnór í leikslok. Vísir/Anton
„Við erum að brjóta blað í íslenskri körfuboltasögu. Það verður seint toppað. Þetta er hátindurinn á ferlinum og gera það fyrir framan okkar fólk þrátt fyrir tap. Engu að síður var þetta mjög góður leikur heilt yfir,“ sagði Jón Arnór Stefánsson sem var frábær í íslenska liðinu þó dregið hafi af honum í seinni hálfleik.

„Höllin var full. Fólkið svaraði kallinu. Ég vil þakka stuðninginn. Þetta var æðislegt og frábær upplifun að spila fyrir framan fulla höll.

„Körfuboltinn var ekkert rosalega góður, í seinni hálfleik aðallega en ég held að þetta hafi verið mikil skemmtun. Ég held að fólk hafi séð okkur leggja sig fram til að vinna leikinn. Það skein held ég úr augunum á okkur,“ sagði Jón sem lék tvo síðustu leiki Íslands í undankeppninni eftir að hafa misst af tveimur fyrstu leikjunum þar sem hann er án samnings og vildi ekki taka áhættuna á að meiðast.

„Það kom kannski í ljós æfingaleysið á mér. Ég var ekki búinn að spila neitt og adrenalínið var bara búið. Ég var þungur og lélegur í seinni hálfleik en þá fengum við körfur frá öðrum. Við náðum að hanga í þeim og hleyptum þeim aldrei langt frá okkur.“

Jón Arnór fór á kostum í byrjun leiksins og hélt íslenska liðinu hreinlega inni í leiknum á meðan aðrir leikmenn áttuðu sig á aðstæðum.

„Ég var rétt stilltur í byrjun. Ég er búinn að æfa með Gunnari Einarssyni í Keflavík. Hann er búinn að hjálpa mér rosalega mikið með réttum æfingum og ég er í nokkuð góðu standi miðað við æfingaleysi.

„Ég er búinn að vera að taka skot líka og var rétt stemmdur. Ég er búinn að spila helling í huganum þó ég hafi ekki verið með í mikið af þessum æfingum og leikjum. Ég var klár í þetta í kvöld.

„Ég rann í byrjun og fann fyrir mjöðminni og svo rann ég hinum megin og þá fann ég fyrir mjöðminni hinum megin. Leiðindadúkur svona sleipur en ég er góður. Ég var aðallega bara þreyttur í lokin,“ sagði Jón Arnór.


Tengdar fréttir

Íslendingar eru einu nýliðarnir á EM 2015

Íslenska körfuboltalandsliðið tryggði sér í kvöld sæti á Evrópumótinu á næsta ári en þetta er í fyrsta sinn sem körfuboltalandslið kemst í úrslitakeppni stórmóts.

Þessar þjóðir verða með Íslandi á EM

Ísland verður meðal 24 þjóða sem keppa á Evrópumótinu í körfubolta á næsta ári en íslenska liðið verður meðal þátttakenda í fyrsta sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×