Körfubolti

Jón Arnór: Gleði en ekki léttir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leiknum í kvöld.
Jón Arnór Stefánsson í leiknum í kvöld. vísir/Bára
Íslendingar unnu Finna, 81-76, í undankeppni HM 2019 í kvöld og héldu þar með vonum sínum á lífi um sæti í lokakeppninni. Þetta var fyrsti sigur Íslands í undankeppninni og hann var kærkominn.

Jón Arnór segir að liðsheildin, fyrst og fremst, hafi skapað sigurinn í kvöld. „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik í allan dag. Og ég hafði engar áhyggjur,“ sagði hann eftir leikinn í kvöld. „Fjórði leikhluti var frábær hjá okkur þar sem við stöðvuðum þá á lykilstundum í vörn og settum niður stór skot í sókninni. Þegar mest lá við þá gerðum við langflest rétt.“

Finnar komu sterkir til leiks í þriðja leikhluta og héldu sjálfsagt einhverjir að þeir væru á góðri leið með að gera út um leikinn. En Jón Arnór sagði að það hafi fyrst og fremst verið þeim sjálfum að kenna.

„En þegar Martin fór svo af stað þá ræður enginn við hann. Hann gat sprengt þetta upp og þá fór að losna um aðra í kringum hann. Skotin fóru að detta, við náðum að vekja upp baráttuanda í okkar liði og þá fór þetta að ganga betur. Við fráköstuðum betur og stjórnuðum taktinum lengst af í fjórða leikhluta.“

Það var mikil gleði eins og gefur að skilja en Jón Arnór segir að það hafi ekki verið léttir að landa sigrinum í kvöld. „Það var einhver að tala um að það væri heldur neikvæð umræða í kringum landsliðið sem mér finnst hafa verið frekar fáránleg ef ég á að vera hreinskilinn. Það var bara sterkt að vinna í dag, þetta var kærkominn sigur en fyrst og fremst gleði að vinna hér fyrir framan fólkið okkar.“

Tryggvi Hlinason missti af leiknum í kvöld þar sem hann er veðurtepptur í Svíþjóð. En hann kemur til landsins á morgun og verður að nýta tímann vel fram að leiknum gegn Tékklandi á sunnudag. „Við getum unnið hvaða lið sem er í Höllinni,“ sagði Jón Arnór bjartsýnn.

„Vonandi getum við nýtt Tryggva því hann mun nýtast okkur vel. Annars þurfum við bara að hvíla okkur vel og safna orku því það er mjög stutt á milli leikja. Það verður mjög gaman að mæta aftur á sunnudag.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×