Lífið

Jolie segir Pitt skíthræddan um að almenningur komist að hinu sanna um ástæður skilnaðarins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Brad Pitt og Angelina Jolie á meðan allt lék í lyndi.
Brad Pitt og Angelina Jolie á meðan allt lék í lyndi. vísir/getty
Bandaríski leikarinn Brad Pitt er „skíthræddur um að almenningur komist að hinu sanna“ um það hvers vegna hann og leikkonan Angelina Jolie eru að skilja. Þetta kemur fram í gögnum sem lögð voru fram fyrir dómi af Lauru Wasser, lögmanni Jolie, og fjallað er um á slúðursíðunni TMZ.

Í skjölunum kemur fram að Jolie þyki það sérstaklega ósvífið af Pitt að saka hana um að leka upplýsingum um skilnaðinn til fjölmiðla en í seinasta mánuði var því haldið fram af lögmönnum Pitt að leikkonan væri að því. Sögðu þeir að Jolie tæki sína eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni barna hennar og Pitt og skeytti lítið um einkalíf þeirra þegar það kæmi sér vel fyrir hana.

Pitt hafði farið fram á að dómskjöl er varða forræði barna þeirra yrðu ekki opinber og kemur fram í frétt TMZ að Jolie hafi nú fallist á það. Hún er hins vegar ekki sátt við Pitt heldur þvert á móti og segir að hann vilji einungis leyna skjölunum því hann sé skíthræddur um að almenningur komist að hinu sanna um ástæður skilnaðarins.

Þá segir jafnframt í skjölunum sem lögmaður Jolie lagði fram að Pitt sé að reyna að beina athyglinni frá sér í fjölmiðlafárinu í kringum skilnaðinn sem hefur bitnað á börnunum þeirra.

„Það er enginn vafi á því að Pitt vill að öll skjöl í málinu séu leynileg, ekki síst vegna nákvæmra rannsókna alríkislögreglunnar, FBI, og barnaverndar á ásökunum um ofbeldi,“ segir einnig í skjölunum.

Bæði FBI og barnavernd felldu málið niður en það snerist um ásakanir á hendur Pitt þess efnis að hann hefði verið með ógnandi hegðun gagnvart börnunum.

Pitt og Jolie tóku saman árið 2004 og giftu sig tíu árum síðar. Þau eiga saman sex börn.


Tengdar fréttir

Brad Pitt hreinsaður af ásökunum um ofbeldi

Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur tilkynnt að hún muni ekki halda áfram rannsókn sinni á ásökunum um að leikarinn Brad Pitt hafi beitt eitt barna sinna ofbeldi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×