Innlent

Jólatónleikar Fíladelfíunnar á Stöð 2 og Vísi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eyþór Ingi og Jóhanna Guðrún í góðum gír ásamt kór Fíladelfíu.
Eyþór Ingi og Jóhanna Guðrún í góðum gír ásamt kór Fíladelfíu. Mynd/Árni Hilmarsson
Stöð 2 mun sýna glæsilega jólatónleika Fíladelfíu sem haldnir voru þann 1. desember sl. í opinni dagskrá á hefðbundnum tíma kl. 23.00 á aðfangadagskvöld. Um er að ræða einstaklega hátíðlega tónleikar sem eru orðnir hluti af jólahaldi svo margra. Tónleikarnir verða einnig sýndir á Vísi.

Jóhanna Guðrún er ein besta söngkona landsins.Mynd/Árni Hilmarsson
Tónlistastjóri var Óskar Einarsson og sérstakir gestir tónleikanna voru þau Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Meðal annarra einsöngvara voru Edgar Smári Atlason, Maríanna Másdóttir, Hrönn Svansdóttir, Íris Lind Verudóttir, Anna Sigríður Snorradóttir og Sigurður Ingimarsson.

Hljómsveitina skipðuðu þeir Óskar Einarsson, Jóhann Ásmundsson, Brynjólfur Snorrason, Friðrik Karlsson, Davíð Sigurgeirsson, Margrét Árnadóttir og Haukur Pálmason. Flutt voru þekkt jólalög ásamt nýju efni sem boða frið og kærleika fyrir alla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×