Innlent

Jólatónleikar Fíladelfíu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
mynd/árni hilmarsson
Árlegir jólatónleikar Fíladelfíu verða í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi á aðfangadagskvöld klukkan 23. Tónleikarnir glæsilegu voru haldnir í byrjun desember en þeir eru orðnir hluti af jólahaldi margra.

Tónlistarstjóri var Óskar Einarsson og sérstakir gestir tónleikanna voru söngkonurnar Eivör Pálsdóttir og Glowie.

Flutt voru þekkt jólalög ásamt nýju efni sem boða frið og kærleika fyrir alla, en tónleikarnir eru haldnir til þess að safna fé til góðgerðarmála. Þeir sem nutu góðs af söfnuninni í ár voru meðal annars Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefnd, Rauði krossinn og Hjálparstarf kirkjunnar. 

Uppfært: 

Til stóð að streyma tónleikunum beint hér á Vísi en sökum tæknilegra örðugleika er það ekki hægt. Beðist er velvirðingar á því. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×