Jól

Jólasýning með Mariah Carey í Sandgerði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jólasýning í Sandgerði
Jólasýning í Sandgerði mynd / skjáskot
Sandgerðingar geta heldur betur verið stoltir af íbúa í bænum en frá klukkan fimm á hverjum degi og til miðnættis yfir hátíðirnar má sjá jólasýningu frá einum heimamanni.

Um er að ræða jólaskraut sem blikkar í takt við hið vinsæla jólalag „All I Want For Christmas Is You“ með Mariah Carey. DV greinir frá þessu í dag. 

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá húsið við Hlíðargötu 37 í allri sinni dýrð í Sandgerði.






×