Bílar

Jólasveinninn stöðvar ökuníðing

Finnur Thorlacius skrifar
Ökuníðingurinn handtekinn eftir eltingaleikinn langa.
Ökuníðingurinn handtekinn eftir eltingaleikinn langa.
Mótorhjólamaður klæddur í jólasveinabúning í Frakklandi varð vitni að því að ökuníðingur keyrði niður gangandi konu á gangbraut og stingur af frá verknaðinum. Hann beið ekki boðanna, sem sannur jólasveinn, heldur elti uppi bílinn og upphófst þá hinn mesti eltingaleikur. Hann endaði með því að fá aðstoð frá lögreglumönnum á mótorhjólum sem handtóku ökuníðinginn.

Þetta má allt saman sjá í meðfylgjandi myndskeiði. Jólasveinninn var með litla GoPro vél á hjálminum sem náði þessu öllu uppá myndband. Þar má sjá, eftir um 1:15 mínútur, þegar ökuníðingurinn ekur á konuna sem fellur fyrir vikið í götuna með miklum óhljóðum. Það fylgir sögunni að konan sem varð fyrir bílnum er á góðum batavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×