Lífið

Jólastjarnan í ár og í fyrra eru saman í bekk í Salaskóla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega skemmtileg tilviljun
Virkilega skemmtileg tilviljun vísir
Hálfdán Helgi Matthíasson bar sigur úr býtum í Jólastjörnunni 2015 en hún er valin í tengslum við stórtónleikana Jólagestir Björgvins sem haldnir eru í Laugardalshöll í desember á hverju ári. Úrslitin voru kynnt í Íslandi í dag í gærkvöldi.

Jólastjarnan var valin í fimmta skiptið í gær en hún er valin í tengslum við stórtónleikana Jólagestir Björgvins sem haldnir eru í Laugardalshöll í desember á hverju ári.

Líkt og fyrri ár sóttu áhugasamir um með því að senda myndbönd hingað á Vísi. Á þriðja hundrað barna sendu myndbönd og úr þeim valdi dómnefndin 12 keppendur sem fá að keppa til úrslita. Að lokum verður Jólastjarnan 2015 valin. Dómnefndina í ár skipa Gunnar Helgason leikstjóri, Gissur Páll Gissurarson söngvari, María Ólafsdóttir söngkona og Björgvin Halldórsson sjálfur.

Lokaþátturinn um næstu jólastjörnu var sýndur á Stöð 2 í gær en þar komu fram sex keppendur. Umsjón með þáttunum hefur leikarinn Rúnar Freyr Gíslason en krakkarnir stóðu sig eins og hetjur í þættinum sem sjá má hér að neðan.

Í fyrra bar Gunnar Hrafn Kristjánsson sigur í keppninni en svo skemmtilega vill til að Gunnar og Hálfdán eru saman í bekk í Salaskóla.


Tengdar fréttir

Fyrsti þáttur Jólastjörnunnar í heild sinni

Jólastjarnan er nú valin í fimmta skiptið en hún er valin í tengslum við stórtónleikana Jólagestir Björgvins sem haldnir eru í Laugardalshöll í desember á hverju ári.

Annar þáttur Jólastjörnunnar í heild sinni

Jólastjarnan er nú valin í fimmta skiptið en hún er valin í tengslum við stórtónleikana Jólagestir Björgvins sem haldnir eru í Laugardalshöll í desember á hverju ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×