Menning

Jólasálmar í kyrrlátum djassútsetningum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Andrés Þór, Karl og Jón láta jólalögin óma í nýjum útsetningum.
Andrés Þór, Karl og Jón láta jólalögin óma í nýjum útsetningum.
Jólasöngvar og sálmar óma í kyrrlátum djassútsetningum í Fríkirkjunum í Hafnarfirði og Reykjavík á sunnudaginn, 14. desember. Þeir Karl Olgeirsson píanóleikari, Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari og Jón Rafnsson kontrabassaleikari annast hljóðfæraleik. Snúið verður upp á upprunalegar útgáfur laganna en þó fá gullfallegar laglínurnar notið sín.

„Við förum hingað og þangað í lagavalinu,“ segir Jón sem er að ljúka æfingu þegar hringt er í hann.

„Þarna eru lög eins og Í dag er glatt, Hátíð fer að höndum ein, Jólin alls staðar og Opin standa himins hlið. Svo er eitt rosalega fallegt frumsamið jólalag eftir Kalla (Karl Olgeirsson). Það heitir Leiðin til Betlehem og þegar fólk heyrir það finnst því það vera að hlusta á sálm. Við frumfluttum það fyrir tuttugu árum á jólatónleikum á Akureyri. Síðan hefur það ekki verið spilað fyrr en núna.“

Tónleikarnir í Fríkirkjunni í Hafnarfirði hefjast klukkan 17 en í Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan 20.

Aðgangseyrir er krónur 2.000 og miðar verða seldir við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×