Innlent

Jólapróf háskólanemenda í tvísýnu vegna kjarabaráttu

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Rúnar Vilhjálmsson
Rúnar Vilhjálmsson
Menntun Félag prófessora við ríkisháskóla undirbýr atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna þar sem ákvörðun verður tekin um það hvort farið verður í verkfall 1.-15. desember næstkomandi. Verði af verkfallinu þýðir það að um helmingur jólaprófa við háskóla landsins frestast.

„Við höfum margóskað eftir formlegum viðbrögðum við viðsemjendur okkar en ekki fengið nein viðbrögð hingað til. Prófessorar eru mjög langþreyttir til vandræða og tregir til þess að grípa til aðgerða en meðal okkar félagsmanna er þolinmæðin þrotin,“ segir Rúnar Vilhjálmsson, formaður félags prófessora.

Í félaginu eru allir prófessorar við ríkisháskólana á Íslandi sem eru allir háskólar utan Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands. Verði af verkfallinu þýðir það að öll námskeið sem prófessorar hafa umsjón með frestast eða falla niður. Rúnar segir að þá myndi um helmingur prófa falla niður.

Hann segir laun prófessora vera komin langt niður fyrir laun kollega þeirra í nágrannalöndunum. „Sem dæmi þá eru prófessorar á Íslandi með 60 prósent af launum danskra prófessora og það þá að teknu tilliti til verðlags í löndunum. 

Kaupmáttur prófessora hefur rýrnað um 16-17 prósent frá 2008,“ segir hann. Félagið gerði skoðanakönnun meðal félagsmanna um það hvort þeir vildu grípa til þessa ráðs. Niðurstöðurnar sýndu að 83 prósent vildu fara verkfallsleiðina og því líklegt að niðurstaðan verði sú að gripið verði til verkfalls náist ekki að semja fyrir 1. desember. 

Ísak Rúnarsson
Ísak Rúnarsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir það alvarlega stöðu verði af verkfallinu. 

„Það liggur fyrir að ef af þessu verður þá er þetta ömurlegt ástand fyrir nemendur og ekki boðlegt. Það myndi til dæmis hafa þau áhrif að námslán yrðu ekki greidd út, ég veit ekki hvernig fólk á þá að sjá fyrir sér því margir treysta á námslánin. Fólk sem er til dæmis með börn á sínu framfæri. Þetta skapar líka óvissu sem getur valdið kvíða sem aftur getur haft áhrif á námið,“ segir Ísak.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×