Jól

Jólaljósmyndakeppnin: Frestur rennur út á miðnætti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sigurmynd ársins 2013 var af Skarðshyrnu
Sigurmynd ársins 2013 var af Skarðshyrnu JÓN HILMARSSON
Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í jólaljósmyndakeppni Vísis og Fréttblaðsins. Þema keppninnar eru jólin og allt sem þeim fylgir.

Áhugasamir hafa til miðnættis í kvöld til að senda inn myndir á  jolamyndakeppni@365.is.

Sigurmyndin mun rata í Fréttablað aðfangadags og sigurvegarinn hlýtur glæsilega Nikon D7200 myndavél frá Heimilistækjum. Neðst í fréttinni má síðan sjá kynningarmyndband fyrir vélina.

Úrval bestu myndanna verða birtar ásamt sigurmyndinni í Fréttablaði aðfangadags. Mælst er til þess að aðeins sé send ein mynd á hvern ljósmyndara.

Hægt er að fylgjast með framgangi keppninnar á síðunni visir.is/jolamyndakeppni eða undir flipanum Jólamynd ársins, en þar munu allar myndirnar birtast.






×