Jólakaka frá ömmu

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13

Rabarbararúsínurnar eru arfleifð frá fyrri tíð þegar fólk hafði minna á milli handanna. Þetta voru rabarbarabitar sem urðu eftir þegar búin var til hrásaft úr rabarbara. Í eitt kíló af rabarbarabitum var blandað 200 grömmum af sykri. Auðveldlega má skipta þeim út fyrir venjulegar rúsínur.

Jólakaka frá ömmu

200 gr. smjörlíki
200 gr. sykur
2-3 egg eða eggjaduft
500 gr. hveiti
2 tesk. lyftiduft
1 tesk. kanell
1 tesk. kardemommur
2 dl. mjólk
3 matsk. rabarbararúsínur
25 gr. súkkat

Smjörlíkið er linað og sykurinn hrærður saman við, unz það er ljóst og létt, þá er eggjarauðunum hrært út í, því næst er hveitinu, lyftidufti, kanel og kardemommum hrært í og vætt með mjólkinni.
Þegar það er vel jafnt, eru rabarbararúsínurnar settar í og súkkatið, en síðast er eggjahvítunum, vel þeyttum, hrært gætilega saman við með hníf.

Bakað í hringmóti í eina klst.



Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Jólakaka frá ömmu