Fótbolti

Jólagjöf Cristiano Ronaldo í ár | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo hefur verið kosinn besti knattspyrnumaður heims undanfarin tvö ár og þessi frábæri fótboltamaður kemur enn og aftur til greina í ár.

Ronaldo á því margar aðdáendur víðsvegar um heiminn og kappinn ákvað að gleðja þá í tilefni jólanna.

Ronaldo tók upp myndband þar sem hann sýndi öllum hið glæsilega heimili hans sem er rétt fyrir utan Madrid. Húsið er metið á um 4,8 milljónir punda eða rétt tæplegan milljarð íslenskra króna. Það er því ekkert sparað hvað varðar húseign eða tækjakost.

Ronaldo sýndi meðal annars, svefnherbergið, sjónvarpsherbergið, matarborðið og garðinn sinn. Hann var þó ekki að sýna verðlaunagripa herbergið sem er örugglega troðfullt frá hans frábæra ferli.

Ronaldo sagðist eyða hálfum deginum í þessu húsi en hann segist leggjar ofurkapp á að hvílast vel eftir krefjandi æfingar.

Þetta hefur verið flott tímabil hjá þessum þrítuga Portúgala sem er búinn að skora 23 mörk og gefa 7 stoðsendingar í 22 leikjum Real Madrid í öllum keppnum.

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í 10-2 sigrinum á Rayo Vallecano um síðustu helgi og er þar með kominn með 12 mörk í 16 leikjum í spænsku deildinni á tímabilinu.

Ronadlo setti ennfremur nýtt met með því að skora 11 mörk í 6 leikjum riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Þar skoraði hann ellefu mörk í leikjunum fjórum á móti Shakhtar og Malmö en náði reyndar ekki að skora í leikjunum við Paris Saint Germain.

Ronaldo endaði myndbandið á því að óska öllum gleðilegra jóla og að vera ánægð því það er það mikilvægasta af öllu. Það er hægt að sjá myndbandið hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×