Jól

Jóladagatal - 8. desember - Jólakort í þrívídd

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í desember hugsar maður til þeirra sem manni þykir vænt um. Upp í huga koma gamlir vinir sem maður hefur ekki séð lengi og fjölskyldan sem stundum býr í órafjarlægð.

Það er skemmtileg hefð að senda jólakort til þeirra sem hreyfa svona við manni og í jóladagatali dagsins kenna Hurðaskellir og Skjóða okkur að föndra skemmtileg jólakort í þrívídd.

Klippa: 8. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×