Jól

Jóladagatal - 7. desember - Fjölskyldumynd

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í jóladagatali dagsins föndra þau Hurðaskellir og Skjóða fjölskyldujólamynd. Það geta allir í fjölskyldunni hjálpast að við að föndra þessa fínu mynd enda inniheldur hún 13 mismunandi jólasveina. Síðan er sniðugt að hita sér kakó og narta í piparkökur, hlusta á jólalög og njóta aðventunnar saman.

Klippa: 7. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×