Jól

Jóladagatal - 5. desember - Jólaföndursveinar

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í jóladagatali dagsins föndra þau Hurðaskellir og Skjóða jólasveina og alls kyns furðuverur sem klifra upp um hillurnar þínar, kíkja upp úr skúffum, leggjast fram á borðið og hanga á klósettinu. Pínulitlir klifrandi sveinar sem gefa heimilinu ævintýralegan blæ.

Klippa: 5. desember - Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×