Jól

Jóladagatal - 22. desember - Jólaskrautið perlað

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Það eru bara tveir dagar til jóla og Hurðaskellir og Skjóða eru orðin alveg svakalega spennt fyrir jólunum. Í dag ætla þau að perla jólaskraut. Það er bæði hægt að perla fallegar styttur til að setja á borðið eða jólaskraut til að hengja á jólatréð.

Klippa: 22. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×