Jól

Jóladagatal - 18. desember - Piparkökuhús

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum.

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Í dag ætla þau að búa til hús úr piparkökum. Skjóða er reyndar ekki alveg með það á hreinu hvernig þetta fer allt saman fram og er næstum búin að skemma piparkökuhúsið fyrir Hurðaskelli bróður sínum.

En auðvitað fer allt vel að lokum og piparkökuhúsið þeirra er ákaflega fallegt.

Klippa: 18. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×