Jól

Jóladagatal - 17. desember - Jólaplastpokar

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Eitt einfaldasta jólaskraut sem um getur er að klippa út plastpoka og líma þá upp. Í dag sýnir Hurðaskellir henni Skjóðu hvernig hægt er að skreyta heilu heimilin með nokkrum innkaupapokum, jólasveinapokum og burðarpokum. 

Klippa: 17. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.








×