Jólabjór á útsöluverði fram að þrettánda nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 3. janúar 2017 20:38 Jólabjórinn frá Einstök er meðal þeirra bjóra sem seldur verður á útsöluverði. vísir/Daníel
Vífilfell ætlar að stórlækka verð á jólabjór frá fyrirtækinu sem ekki seldist yfir hátiðirnar. Mbl.is greinir frá þessu. Með verðlækkuninni vill Vífilfell sporna gegn matarsóun. Á ári hverju er tugþúsundum lítra jólabjórs fargað vegna reglugerðar ÁTVR sem kveður á um að árstíðabundnar vörur megi aðeins vera í hillum verslananna í takmarkaðan tíma. Vísir greindi frá því í janúar á síðasta ári að 30 þúsund lítrum af jólabjór hefði verið fargað vegna reglugerðarinnar. Hilmar Geirsson, vörumerkjastjóri hjá Vífilfelli sagði í samtali við mbl.is að jólabjórinn sem nú er í hillum Vínbúðanna sé í góðu lagi og renni ekki út fyrr en með haustinu. Markmiðið með verðlækkununum sé að koma í veg fyrir að farga þurfi bjór í lítratali. Að hans sögn verður bjórinn 60 til 110 krónum ódýrari á þessu sérstaka útsöluverði.Endurnýta bjór til þess að brugga viskíÁrni Hafstað, eigandi brugghússins Gæðings, segir í samtali við Vísi að fyrirtækið hyggðist ekki ætla að grípa til verðlækkunar. „Raunar hefðum við þurft að tilkynna um lækkað verð fyrir 20. desember síðastliðinn,“ segir Árni. Hann segir að brugghúsið Gæðingur hafi hingað til ekki þurft að farga miklu magni af bjór. Bjórinn sem verður afgangs fer ekki í vaskinn hjá brugghúsinu, heldur er hann endurnýttur við bruggun á viskí. Samkvæmt reglum ÁTVR má jólabjór aðeins vera í hillum verslananna til 6. janúar. Því geta neytendur aðeins nælt sér í jólabjór á lækkuðu verði fram á föstudag.Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Kalda.Ekki möguleiki fyrir landsmenn að klára birgðirnar á svo stuttum tíma Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Kalda, fullyrðir í samtali við Vísi að jólabjór brugghússins verði ekki lækkaður í verði. Þess gerðist ekki þörf enda lítið eftir af jólabjór Kalda. „Restin af brugginu okkar er öll í hillum Vínbúðanna, hér er enginn afgangur,“ segir Agnes. Hún segir að eflaust muni eitthvað af þessum eftirstandandi flöskum vera sendar til brugghússins eftir 6. janúar sem þyrfti að farga en magnið yrði óverulegt. Hún telur þó að magnið af jólabjór sem hefur verið til sölu í verslunum ÁTVR fyrir jól undanfarin ár sé í raun allt of mikið. „Þetta er of mikið magn til þess að landsmenn geti hreinlega drukkið þetta allt á svona stuttum tíma,“ segir Agnes og vísar til þess að tímarammi sölu jólabjórs sé knappur. Hún segir þó að smærri brugghús, líkt og Kaldi, þurfi sjaldan að grípa til förgunar í miklum mæli enda eru þau ekki í aðstöðu til þess að brugga jafn mikið í einu og stærri framleiðendur. Fréttastofa Vísis reyndi að ná tali af forstjóra Ölgerðarinnar við vinnslu fréttarinnar en án árangurs.
Íslenskur bjór Tengdar fréttir Hátt í 500 þúsund lítrar af jólabjór í landann Tuborg vinsælastur. 17. desember 2014 14:11 Yfir 500 þúsund lítrar af jólabjór seldir í ár Sala á jólabjór fór hægar af stað nú en í fyrra. Um 32 þúsund færri lítrar höfðu farið í maga neytenda þann 20. desember. Birgjar farga því sem ekki selst. 27. desember 2016 07:00 30 þúsund lítrum af jólabjór fargað 745 þúsund lítrar af jólabjór seldust í vínbúðunum um síðustu jól og er það 11,4 prósenta aukning frá því í fyrra þegar um 669 þúsund lítrar af bjór seldust. 15. janúar 2016 07:00 Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira
Yfir 500 þúsund lítrar af jólabjór seldir í ár Sala á jólabjór fór hægar af stað nú en í fyrra. Um 32 þúsund færri lítrar höfðu farið í maga neytenda þann 20. desember. Birgjar farga því sem ekki selst. 27. desember 2016 07:00
30 þúsund lítrum af jólabjór fargað 745 þúsund lítrar af jólabjór seldust í vínbúðunum um síðustu jól og er það 11,4 prósenta aukning frá því í fyrra þegar um 669 þúsund lítrar af bjór seldust. 15. janúar 2016 07:00