Lífið

Jólaauglýsing sem allir eru búnir að bíða eftir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg auglýsing.
Falleg auglýsing.
Undanfarin ár hafa jólaauglýsingar orðið sívinsælar hjá fyrirtækjum um allan heim og keppast þau oft við að gera sem mest úr hátíðunum í sínu kynningarstarfi. Verslunarkeðjan John Lewis reið á vaðið í gær og birti stórglæsilega og tilfinningaþrungna auglýsingu.

Í henni má sjá unga stúlku fá það sem hún hafði alltaf óskað sér í jólagjöf, trampólín. En einnig kemur fram að það geta í raun allir nota trampólín, hvort sem það eru börn eða bara dýr.

John Lewis leggur ávallt gríðarlega mikið upp úr jólaauglýsingum og hefur nú í raun skapast sú hefð í Bretlandi og víðar að fólk einfaldlega bíður eftir auglýsingunni ár hvert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×