Lífið

Jökull var of myndarlegur fyrir Kate Moss

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Jökull júlíusson úr Kaleo, Marc Almond úr Soft Cell og Smutty Smiff ferskir að vanda.
Jökull júlíusson úr Kaleo, Marc Almond úr Soft Cell og Smutty Smiff ferskir að vanda.
„Þetta var erfiðasta partíið til að komast inn í borginni, aðeins gestalisti. Þetta var sannkallað „who‘s who“,“ segir rokkarinn Smutty Smiff, sem hélt allsherjar pönkveislu á Ace-hótelinu í London á dögunum. „Guð minn góður hvað þetta var brjálað.“

Partíið var eftir ljósmyndasýningu Bob Gruens, félaga Smuttys, sem tekið hefur einhverjar frægustu ljósmyndir rokksögunnar. Smutty spilaði síðan með All Star pönksveit sinni með Walter Lure úr The Heartbreakers, Bill Polecat á bassa, Dave Ruffy úr Dexys Midnight Runners og sjálfum Marc Almond úr Soft Cell.

Marc Almond og Kate Moss voru flott saman.
Það voru rokkararnir í Kaleo sem hituðu upp og að sögn Smuttys slógu rækilega í gegn. „Fólk fílaði þá virkilega vel. Þeir stigu úr flugvélinni og fóru beint að spila, alvöru rokk og ról.“

Margir frægir pönkarar voru á svæðinu svo sem Paul Cook, trommari Sex Pistols og síðast en ekki síst ofurfyrirsætan Kate Moss. „Kate var í baksviðsherbergi Kaleo í klukkutíma og fannst þeir frábærir. Ég spurði hana hvort hún vildi ekki láta mynda sig með Jökli, söngvara Kaleo og hún sagði: „Nei, hann er of myndarlegur.““

Almond, sem gerði garðinn frægan með laginu „Tainted Love“, tróð upp og Smutty var ekki langt frá á bassanum.
Jökull var sjálfur sáttur við fögnuðinn. „Kate var virkilega hress, svosem ekkert meira um það að segja. Þetta var mjög skemmtilegt og svolítið öðruvísi að spila í þessu partíi. Það voru margir skemmtilegir karakterar þarna og allir hressir á því.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×