Enski boltinn

Johnson: Þeir hljóta að hata mig hérna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Johnson fagnar sigrinum.
Johnson fagnar sigrinum. Vísir/Getty
Adam Johnson, hetja Sunderland gegn Newcastle, var skiljanlega kampakátur eftir leikinn í dag. Johnson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma, 1-0.

„Við höfum unnið þrjú ár í röð núna, þeir hljóta að hata mig hérna. Þrír sigrar og héldum hreinu í öll skiptin," sagði Adam í viðtali í leikslok.

„Þetta er persónulega minn uppáhalds leikur að koma og spila hér. Hér er frábært andrúmsloft og áhorfendur taka vel undir."

„Ég klikkaði færi snemma í leiknum og ég yrði eyðilagður hefði ég klikkað færinu í lokin líka. Ég tók mér tíma og hann fór inn. Þetta er mikilvægt fyrir okkur, þetta gefur okkur mikinn kraft," sagði hetjan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×