Bíó og sjónvarp

John Oliver tætir í sig samsæriskenningamyndbönd

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Eru öllu stýrt af vélmennum, geimverum eða forsetum Bandaríkjanna sem eru vélmenni eða geimverur?
Eru öllu stýrt af vélmennum, geimverum eða forsetum Bandaríkjanna sem eru vélmenni eða geimverur? Vísir/Skjáskot
Breski þáttastjórnandinn John Oliver tók sér frí frá páskafríi sínu í gær til þess að rífa í sig samsæriskenningamyndbönd í sérstakri vefútgáfu af þætti sínum Last Week Tonight.

Í þættinum ræddi hann um samsæriskenningamyndbönd á YouTube, eða það sem Oliver nefnir „vísindaskáldskap fyrir þá sem átta sig ekki á því að þeir eru að horfa á vísindaskáldskap.“

Oliver lýsti af sinni alkunnu snilld Trump hvernig í ósköpunum menn fáist til þess að gera myndbönd um að flugvöllurinn í Denver sé hannaður af Illuminati svo dæmi séu tekin.

Innslagið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

 


Tengdar fréttir

John Oliver um vegginn hans Drumpf

Grínistinn og þáttastjórnandinn John Oliver fjallaði í gær um tillögu forsetaframbjóðandans Donald Trump um að byggja vegg við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×