Lífið

John Oliver gerir grín að kvikmyndum um ofurhetjur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
John Oliver er einn vinsælasti sjónvarpsmaður í heimi.
John Oliver er einn vinsælasti sjónvarpsmaður í heimi.
Sjónvarpsmaðurinn John Oliver er í fríi á HBO og Stöð 2 þessa vikuna en tók sig til og henti í innslag á netinu þar sem hann tekur fyrir kvikmyndir um ofurhetjur.

Myndirnar hafa verið afar fyrirferðamiklar í kvikmyndahúsum undanfarin misseri og það virðist ekki hitta í mark hjá enska sjónvarpsmanninum sem lætur sér fátt óviðkomandi

Húmorinn er í fararbroddi sem fyrr hjá Oliver sem rifjar upp ofurhetju sem hann skapaði sjálfur, að eigin sögn, þegar hann var krakki. „Johnny Strong,“ sem virðist eiga ýmislegt sameiginlegt með sjónvarpsmanninum.

Innslagið má sjá hér að neðan. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×