Bíó og sjónvarp

John Oliver fer yfir komment á Youtube

Samúel Karl Ólason skrifar
Last Week Tonight er í nokkurra vikna fríi en John Oliver birtir þó af og til stutt og skemmtileg myndbönd á Youtube. Í gær birti hann myndband þar sem hann fer yfir nokkrar athugasemdir sem hafa verið skrifaðar við innslög hans á Youtube.

Þar er honum meðal annars hælt fyrir stórfenglegar augabrúnir. Það er þó óhætt að segja að það fari ekki mikið fyrir hrósunum eftir það.

Last Week Tonight snýr aftur þann 24. júlí.

Hann gerði þetta einnig í þáttarhléi í ágúst 2014.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×