Erlent

John Glenn er látinn

Anton Egilsson skrifar
Barrack Obama heiðrar John Glenn.
Barrack Obama heiðrar John Glenn. Vísir/GETTY
John Glenn, fyrrverandi geimfari og öldungardeildarþingmaður, er látinn 95 ára að aldri. CNN greinir frá.

Glenn var fyrsti bandaríkjamaðurinn til að fara á braut um jörðu en það gerði hann þann 20. febrúar árið 1962 um borð í geimfarinu Friendship 7. Eftir að hann hætti störfum hjá NASA gekk síðan til liðs við Demókrataflokkinn og var kjörinn öldungardeildarþingmaður árið 1974. Því sæti hélt hann til ársins 1999.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×