Enski boltinn

John Cross: Fullkomin niðurlæging fyrir England

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kyle Walker og félagar eftir leikinn í kvöld.
Kyle Walker og félagar eftir leikinn í kvöld. Vísir/Getty
John Cross, blaðamaður Daily Mirror, er einn þekktasti blaðamaður enskrar knattspyrnu. Hann sagði í Fréttablaðinu í morgun að tap gegn Íslandi væru verstu úrslit enskrar knattspyrnu frá upphafi og hann stóð við þau orð í kvöld.

„Það er það sem ég sagði í umfjöllun minni um leikinn. Þetta er fullkomin niðurlæging,“ sagði hann við Vísi eftir leikinn í kvöld.

„Við höfum samanburð við tapið gegn Bandaríkjunum á HM 1950. En þetta er önnur kynslóð knattspyrnumanna og á öðrum tíma. HM var á byrjunarstigi þá og ég held að þetta sé í raun mesta tap sem enska landsliðið hefur upplifað.“

Hann nefnir þessu til stuðnings að landsliðsþjálfari Englands, Roy Hogdson, hætti strax eftir leik.

„Þýðing þessa taps er gríðarlega mikið fyrir enska knattspyrnu. Nú þurfum við að leita að nýjum þjálfara og byrja upp á nýtt.“

„En niðurlægingin er svo mikil. Við eigum góða leikmenn sem líta allir illa út í landsliðstreyju Englands.“

Hann segir að enskir fjölmiðlar geri ekki lítið úr þætti íslenska liðsins í kvöld.

„Enska liðið spilaði ekki vel en Ísland spilaði vel. Ísland var mun betra liðið og átti skilið að vinna leikinn,“ sagði hann.

„Ísland varðist vel og var skipulagt. Liðið náði líka að spila með smá flæði í sínum leik. Íslendingar sköpuðu sér færi og voru heilt yfir góðir.“

„Það er enska liðið sem var að henda löngum boltum fram. Ísland var vel skipulagt og átti þetta fullkomlega skilið. England á engar afsakanir þó svo að ég sé viss um að einhverjar munu koma.“

„En þú mátt vera viss um að ensku blöðin verða mjög skrautleg á morgun, eftir þetta kvöld. Það er alveg víst.“


Tengdar fréttir

Lið framtíðarinnar í vandræðum

Þrjátíu ár af sárindum var sungið í laginu Three Lions (Football's Coming Home) þegar það var samið fyrir EM 1996 sem haldið var á Englandi. Þar tapaði liðið í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum gegn Þýskalandi sem jók á sársaukann. Tuttugu ár eru liðin og enska liðið þekkir ekkert nema sárindi á stórmótum. Svo mikinn að í dag er textinn "No more years of hurt“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×