Sport

John Cena grillar stjörnunar á ESPYS | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
John Cena er hress.
John Cena er hress. vísir/getty
John Cena, ofurstjarna WWE fjölbragðaglímunnar í Bandaríkjunum, var kynnir á ESYPS-verðlaunahátíðinni í gær þar sem bestu íþróttamenn Bandaríkjanna eru verðlaunaðir árlega.

Cena tók nokkrar af skærustu stjörnum íþróttaheimsins í gegn í tíu mínútna upphafatriði sínu en þar fengu menn á borð við LeBron James, Kevin Durant, Kevin Love, Peyton Manning og Kobe Bryant að kenna á því.

Cena benti á að ýmislegt væri nú líkt með alvöru íþróttum og þeim sem skrifaðar eru eins og fjölbragðaglíman sem er auðvitað uppspuni frá upphafi til enda og er aðallega hugsað sem skemmtiefni.

John Cena hefur verið að færa út kvíarnar undanfarin ár en hann hefur bæði gefið út rapptónlist og leikið í bíómyndum á borð við Trainwreck.

Meinfyndið uppistand hans í gær má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×