Lífið

Jóhannes er fyndnasti neminn í Háskóla Íslands

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Stemming var í Stúdentakjallaranum í gær.
Stemming var í Stúdentakjallaranum í gær. Vísir/Stefán
Jóhannes Ingi Torfason laganemi stóð uppi sem sigurvegari þegar nemendur við Háskóla Íslands útnefndu fyndnasta nemanda skólans. Keppnin fór fram í Stúdentakjallaranum í gærkvöldi en 100 þúsund króna vinningsfé var undir.



Í öðru sæti var Halldóra Kristín Unnarsdóttir og Brynjólfur Jóhann Bjarnason í því þriðja.



Steiney Skúladóttir úr Hraðfréttum var kynnir kvöldsins ásamt því að dómarar kvöldsins verða Bylgja Babýlons, Daníel Geir Moritz og Logi Bergmann.



Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis, var á staðnum og myndaði gleðina.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×