Handbolti

Jóhanna samdi við Selfoss

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhanna eftir undirskriftina.
Jóhanna eftir undirskriftina. mynd/selfoss
Kvennalið Selfoss í handknattleik fékk góðan liðsstyrk í gær.

Þá skrifaði Jóhanna Helga Jensdóttir undir eins árs samning við félagið.

Hún kemur til félagsins frá FH en þar áður var Jóhanna Helga á mála hjá Haukum.

Jóhanna hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Aftureldingu er hún var aðeins 15 ára gömul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×