Enski boltinn

Jóhann mun líklegast spila á Englandi

Vísir/Getty
Jóhann Berg Guðmundsson mun að öllum líkindum spila á Englandi á næsta tímabili en þetta kom fram í viðtali í sjónvarpsþætti 433.is á ÍNN í gærkvöld.

Jóhann er án félags í augnablikinu en samningur hans við AZ Alkmaar rann út á dögunum eftir fimm ár hjá hollenska félaginu.

„Vonandi klárast þetta í vikunni eða byrjun næstu viku, eins og staðan er núna er England líklegasti áfangastaðurinn,“ sagði Jóhann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×